Hanna Birna Kristjánsdóttir67 q123489Aa Mmvx i t
Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) | |
Fæðingardagur: | 12. október 1966 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Hafnarfjörður |
Flokkur: | ![]() |
Þingsetutímabil | |
2013-2016 | í Rvk. s. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2008-2010 | Borgarstjóri í Reykjavík |
2013-2016 | Varaformaður Sjálfstæðisflokksins |
2013-2014 | Innanríkisráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Hanna Birna Kristjánsdóttir (f. 12. október 1966) er fyrrum innanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri í Reykjavík.
Hanna Birna er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún lauk verslunarskólaprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1984 og stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1986. Hún lauk prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1991 og M.Sc. prófi í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Háskólanum í Edinborg 1993.
Hanna Birna var starfsmaður Öryggismálanefndar 1990-1991, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu 1994-1995 og framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna 1995-1999. Á árunum 1999-2006 var Hanna Birna aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Hanna Birna var borgarfulltrúi í Reykjavík á árunum 2002-2013 og oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn 2008-2013. Hún var forseti borgarstjórnar á árunum 2006-2008.
Hanna Birna var kjörin borgarstjóri 21. ágúst 2008 og tók við embættinu af Ólafi Friðriki Magnússyni. Hún lét af embætti að loknum kosningunum 2010 þegar Besti flokkurinn og Samfylkingin mynduðu meirihluta og Jón Gnarr varð borgarstjóri.
Hanna Birna var kjörin forseti borgarstjórnar í júní 2010 með 15 samhljóða atkvæðum. Með því var tryggt sögulegt samstarf minnihlutans við meirihluta borgarstjórnar. Samstarfið stóð í tíu mánuði, en Hanna Birna sagði af sér forsetaembættinu í apríl 2011 vegna málefnaágreinings við meirihlutann.
Hún sóttist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar 2013. Hún sigraði með miklum yfirburðum og leiddi lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 var hún kjörin varaformaður með 95% atkvæða. Að loknum alþingiskosningum varð hún 1. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.
Hanna Birna tók við embætti innanríkisráðherra 23. maí 2013 en sagði af sér 21. nóvember 2014 eftir hið svokallaða lekamál.
Hanna Birna ákvað að gefa ekki kost á sér í Alþingiskosningunum 2016.[1]
Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]
- Lekamálið
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
- Ferill Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á heimasíðu Reykjavíkurborgar
- Hanna Birna í framboð til formanns, frétt á Rúv.is 3. nóvember 2011
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
- Hanna Birna Kristjánsdóttir; æviágrip; grein af Alþingi.is
Fyrirrennari: Ögmundur Jónasson |
|
Eftirmaður: Ólöf Nordal | |||
Fyrirrennari: Ólöf Nordal |
|
Eftirmaður: Ólöf Nordal | |||
Fyrirrennari: Ólafur F. Magnússon |
|
Eftirmaður: Jón Gnarr |

- ↑ 13 þingmenn hætta - 6 fyrrverandi ráðherrar Rúv, skoðað 14. september, 2016.